Lén | Domain nafn
Þegar þú ert búinn að fjárfesta í hýsingu fyrir síðuna þína þá er nauðsynlegt að eiga lén.
Hvað er Lén? Það er t.d. www.ruv.is með endingunni .is
Eins og almenningur veit þá er verðlag á Íslandi fáránlegt hvort sem það tengist álagningu á matvörum, bensíni eða öðru. Þú greiðir t.d. fyrir Íslenskt lén 7.982,- krónur sem er fáránlegt verð og er þetta gjald innheimt á ársgrundvelli. Sjá gjaldskrá Isnic á Íslandi.
Vefhýsing á Íslandi er því miður enn oftast dýrari ásamt öðrum ónefndum gjöldum þannig lausnin er Hostgator fyrirtækið. Þegar kemur að lénum. Dæmi um lén: www.netsjonvarp.com –
Þú kaupir að sjálfsögðu það lén sem þú vilt og það kostar þig ekki nema 1.240,- krónur árgjaldið að vera með svona lén og sjálfsögðu geturðu sagt því upp þegar þú vilt. Þú skalt lesa þig betur til um þetta hjá Namecheap
Þarna geturðu keypt þér .com, .net eða .org lén ásamt öðrum. En við mælum með .com lénum ef það er ekki laust skaltu fáðu þér .net lén.
Það er ekki furða að okkur finnst það dýrt að kaupa .is lén. Þegar það munar 6742,- krónum á Isnic á Íslandi og NameCheap þetta eru bara lén. Þú færð ódýrari lén hjá NameCheap. (Það skal tekið fram að ekki er hægt að kaupa .is lén í gegnum NameCheap heldur er það gert hjá Isnic)
Lén er Íslenskt heiti á annars erlenda nafninu Domain.
Vefhýsing – Það sem þú þarft að fá að vita
Í þessari grein um vefhýsingu ætlum við að punkta niður þá hluti sem hafa ber í huga þegar kemur að því að velja vefhýsingu.
1. Þú verður að vera viss um að þjónustan sem þú ert að greiða fyrir er traust, þar að segja að “serverinn” (tölvan) liggi ekki niðri. Það er ekkert jafn leiðinlegt og sjá að vefsíðan þín liggur niðri, það skiptir öllu máli að vefurinn þinn sé uppi allan sólahringinn, 24 klst, 365 daga allt árið í kring.
2. Það eru vissulega nokkur mikilvæg atriði sem þú verður að athuga áður en þú kaupir þér vefhýsingu og þau verða skoðuð hér betur með þér en þau eru eftirfarandi:
a) Er verið að bjóða þér ótakmarkað pláss eins og þeir bestu bjóða þér í bransanum? Ef ekki, þá skaltu hugsa málið betur. Sjá Hostgator Þeir bjóða viðskiptavinum sínum ótakmarkað pláss.
b) Þarftu að greiða aukalega fyrir að hýsa fleiri lén á sama reikningi? Þá skaltu leita annað.
c) Hversu mörg netföng máttu setja upp? Þú átt að geta sett upp endalaust af netföngum.
d) Hversu marga MySQL gagnagrunna máttu setja upp? 100+ eða ótakmarkað? Þú þarft ekki meira en 100 þó Hostgator bjóði þér að setja upp ótakmarkað magn af MySQL gagnagrunnum.
e) Ertu að fá aðgang að eftirfarandi: SSH (Secure Shell), SSL, FTP Stats, CGI, Ruby (RoR), Perl, PHP, MySQL? Þú verður að vera viss um að fá eftirfarandi með vefhýsingunni þinni.
f) Þarftu að greiða aukalega fyrir að setja upp nýtt lén eða færa það? Þá skaltu leita annað.
Það eru vissulega fjölmörg fleiri smáatriði sem skipta máli. Best er fyrir þig að skoða Hostgator og svo skaltu bera það saman við það sem þjónustuaðilar á Íslandi eru að bjóða þér upp á. Eitt vitum við þú verður hissa.
Vefhýsing.org – Hjartanlega velkomin
Vefhýsing á lægra verði fyrir þig. Þó að vefurinn sé nýr í sniðinu og margt eigi eftir að bætast inn á hann núna á næstu dögum er það okkur hinsvegar sönn ánægja að opna vefinn og viljum við nota tækifærið og bjóða þig hjartanlega velkomin/n.
Það hefur vissulega lengi vantað að okkur finnst vef á Íslandi, nokkurskonar upplýsingatorg hvar þú getur gert bestu kaupin þegar kemur að vefhýsingu fyrir sjálfan þig, já eða jafnvel fyrirtæki þitt.
Okkar hugsun er einföld við ætlum að hjálpa þér og um leið benda þér á betri kosti þegar kemur að vefhýsingu. Vefhýsingu sem þú getur bæði stólað á og um leið verið mjög ánægður með.
Sjálfsögðu munum við aðeins mæla með þeim bestu í bransanum. Þannig þú getur verið viss um að fá topp þjónustu, betri vefhýsingu á betra verði fyrir vefsíðuna þína á netinu.
